Fávitinn eftir Fjodor Dostojevskij. Sagan var samin 1868–69 í Evrópuferð höfundarins.
Það má segja að skáldsagan mikla Fávitinn (rús. Идиот) eftir Fjodor Dostojevskij (1821–1881) sé tilraun til þess að lýsa hinum fagra manni; tilraun til þess að draga upp mynd af hreinum manni. En, sú tilraun er gerð í þeirri vissu að Kristur sé sá einasti eini fagri og hreini maður sem er þekktur. Tilraun rússneska skáldsins gengur út á það að draga línu á milli Myshkins fursta og Krists. Hið fagra og þjáningin haldast í hendur hjá Dostojevskij í þessari sögu – og reyndar mjög oft í því sem hann skrifaði. Þannig – og með þeim eina hætti – nær Dostojevskij að tengja þá saman, fávitann og Krist.
Furstinn Lev Myshkin í Fávitanum er persóna sem Dostojevskij skrifar sem góða, heiðvirða og saklausa manneskju. Furstinn er maður sem býr yfir einfaldleika, hlýju, fyrirgefningu og kærleika – nánast eins og Jesús sjálfur, eða eins og barn í trúnni. Samfélagið í kringum hann – spillt, grimmt og firrt – getur ekki tekist á við einlæga góðvild hans og sakleysi. Lev Myshkin er einskonar mælikvarði, hann varpar nýju ljósi á spillt samfélagið. Hann afhjúpar, berar spillingu efstu stéttanna. Dostojevskij skoðar í þessari sögu þjóðfélagið með augum þolandans; augum hinna smæstu. Því verður gott og illt afstætt – allt eftir því hver á horfir. Höfundur gerir margar atlögur að því að draga fram Krist í Myshkin fursta, til dæmis kallar hann fram Don Kíkóta til viðmiðunar – riddarinn sjónumhryggi er þannig líka Jesúmynd, verður að athlægi, spaugilegur í augum samfélagsins.
Samband Myshkins við þær tvær konur sem spila stærstu rulluna í lífi hans eru líka dæmi sem bera má beint saman við Krist. Sambandi hans við Nastösju má líkja við samband Krists við bersyndugu konuna. Hann dregst að henni ekki bara vegna fegurðar heldur líka og ekki síður vegna eymdar hennar og þjáningar. Hún aftur á móti skilur ekki hvers vegna hann laðast að henni. Aglaja dregst að Myshkin vegna heiðarleika hans, sakleysis og einstakrar siðferðiskenndar. Hún sér hann sem óvenjulegan mann – næstum heilagan. En væntingar þeirra eru ólíkar, Aglaja leitar að sterkum, jafnvel hetjulegum elskhuga – einhverjum sem berst fyrir henni og sýnir ástríðu. Myshkin er aftur á móti mildur, kærleiksríkur og forðast árekstra. Hann elskar Aglöju, en á sinn eigin, friðsæla hátt – og getur ekki mætt þeim tilfinningalegu kröfum sem hún gerir. Hér má sjá hina kærleiksríku nálgun Krists gagnvart fjölmörgum konum sem verða a vegi hans í guðspjöllunum, þannig gætum við jafnvel hugsað okkur hug Jesú til Mörtu og Maríu vera svipaðan þeim sem Myshkin ber til Aglöju.
Lýsingar og myndmál eru oft með þeim hætti í sögunni að Myshkin er barnslegur og varla þátttakandi í mannlífinu í kringum hann. Samt er hann, eða kannski einmitt þess vegna, inni í hinni existensíalísku mynd af Jesú Kristi.
Furstinn sameinar tvennskonar Jesúímyndir: hina upphöfnu og hina þjáðu. Fávitinn er frumfrelsarinn, hann dregur að sér athygli allra og verður miðpunkturinn þrátt fyrir að vera með einhverjum hætti á skjön.
Dostojevskij notar stöðu Myshkins sem fursta til að skapa spennu milli félagslegrar virðingar og raunverulegs máttleysis. Hann er einskonar „andlegur“ eða „siðferðilegur“ fursti – fulltrúi góðvildar og kristilegrar fórnarlundar – í heimi spillingar og sjálfselsku. Líkt og Kristur er konungur án veraldlegs valds.
Að lokum eru það hinir fögru eiginleikar sem valda falli hans. Fávitinn sjálfur er gjarna tekinn sem dæmi um dæmigerðan Kristsgerving – það eru gömul sannindi og ný, almenn vitneskja. Til dæmis má nefna orð þýska rithöfundarins Heinrichs Böll: „Dostojevskij hafði enga vísindalega þekkingu á sálfræði og samt skrifaði hann sálfræðilega skáldsögu – og enn hef ég ekki séð betri bókmenntalega framsetningu á Jesú en í Fávita Dostojevskijs.“
Fávitinn, Myshkín fursti, varpar nýju ljósi á hið spillta þjóðfélag. Hann afhjúpar spillingu og fláræði. Þannig er Fávitinn eftir Fjodor Dostojevskij tilbrigði við sögu Jesú Krists. Eitt af þúsundum meistaraverka bókmenntasögunnar sem leitar í hinn mikla fjársjóð, Biblíuna.
Hann var fyrirlitinn og menn forðuðust hann, harmkvælamaður og kunnugur þjáningum, líkur manni sem menn byrgja augu sín fyrir, fyrirlitinn og vér mátum hann einskis. (Jes 53:3)
Þessi spádómur um Krist gæti eins verið mannlýsing, allt á þetta við um Myshkin fursta.
En hvers vegna „fáviti“? Jú, Myshkin er gjarna talinn fáviti af samfélaginu af því að hann er svo hreinn, einfaldur og góðviljaður – virðist jafnvel kjáni í barnslegri sýn sinni á lífið. En í raun er hann djúpt hugsandi, greindur og með góða siðferðiskennd. Því er honum hafnað í reynd. Líkt og Jesú var einnig hafnað og hann misskilinn af sínum samtímamönnum, þó hann hafi boðið upp á sannleikann og ljósið. Hér kemur ósjálfrátt upp í hugann: „Sælir eru hógværir, því að þeir munu jörðina erfa.“ (Mt 5:5) Myshkin er hógvær í gegn, en heimurinn metur það ekki. Myshkin minnir okkur aftur og aftur á Krist í þjáningu sinni og einangrun.
Lev Myshkin er ekki Jesús endurborinn, heldur frekar spegilmynd – manneskja sem sýnir hvað það getur þýtt að lifa samkvæmt guðlegum siðferðisgildum í veraldlegum heimi. Hann er tragísk persóna af því að heimurinn getur ekki tekið á móti slíkri góðvild – rétt eins og Jesús var krossfestur af þeim sem hvorki vildu hann né skildu.
Hér verður ekki rakið – þeirra vegna sem ekki hafa lesið söguna – hvernig hún endar, en þó má gefa það upp að Fávitinn er ekki hetjusaga þar sem hinn góði sigrar, heldur rannsókn á því hvernig hinn hreini einstaklingur – tákn skilyrðislausrar góðvildar – getur varla lifað í heimi sem er byggður á hroka, græðgi, illsku og sjálfsblekkingu.
Skáldsögunni Fávitinn var miður vel tekið þegar hún kom út í fyrsta sinn. Kannski var það vegna þess að sagan þótti torræð og margt í henni heldur óskýrt. Höfundurinn afsakaði sig jafnvel og sagði að verkið væri ekki fullkomið. En hvaða skáldverk er fullkomið? Sagan er fyrir margt löngu orðin klassísk og hið torráðna og ófullkomna hefur sannað styrk sinn. Í dag eru flestir sammála um að Fávitinn, sagan af Myshkin fursta, góðmennsku hans og raunum, sé eitt af helstu meistaraverkum heimsbókmenntanna. Enn ein sagan í þeim flokki sem sækir svo ótal margt í heilaga ritningu.
