Áhrifasaga – Kristskvæði
Oft þegar rætt er um áhrifasögu þá horfir fólk nærri sér í tíma, til nýlegra bókmennta, listaverka, bíómynda og svo mætti lengi telja. En áhrifasaga Biblíunnar er auðvitað miklu lengri og viðameiri en það – þótt vitaskuld sé ekkert að því að skoða áhrifin á okkar tímum og á nýlega umliðnum áratugum.
Kristskvæði eru undirgrein helgikvæða. Í Kristskvæðum er yfirleitt lýst þáttum úr lífi og starfi Krists en oftar en ekki tengjast þau píslum frelsarans og dauða. Stundum er áherslan á krossinn og krossfestinguna. Það er friðþægingin sem þar er undir; áherslan á að gera upp syndir sínar og iðrast.
Elsta íslenska Kristskvæðið er með áhersluna á hinum krossþjáða frelsara mannanna. Ljóðið er dróttkvæð drápa líklega ort undir lok 12. aldar og heitir „Harmsól“. Höfundur er óþekktur en kallar sig Gamla kanoka og var sá munkur í Þykkvabæjarklaustri. Efni kvæðisins er að iðrandi syndugur maður vill fá fyrirgefningu frá Kristi. Frelsarinn er þjakaður af sorg vegna þess hve mennirnir eru syndum hlaðnir en býður þó þeim sem eftir leitar sáluhjálp.
Kvæðið er ekki auðlesið nútímamanni því það er fullt af fornum skáldskaparkenningum, orðaröð er oft sérstök og dýrt er kveðið. Jafnvel heiti kvæðisins leynir á sér, harmsól er kenning fyrir Krist. Það er að segja: Kristur er vitaskuld okkar náðarsól, upprisinn og boðar von og birtu, en hér er hann harmi sleginn; hann er sól harmsins. Kvæðið er 65 erindi, en það fyrsta er þannig:
Hár stillir, lúk heilli, hreggtjalda, mér, aldir, upp, þú 's allar skaptir, óðborgar hlið góðu, mjúk svát mætti auka mál gnýviðum stála miska bót af mætu mín fultingi þínu.
Rétt um öld síðar er ort kvæðið „Líknarbraut“. Píslarsagan og endurlausnin eru þar til umfjöllunar. „Líknarbraut“ er léttari aflestrar en „Harmsól“ fyrir okkur í dag, þótt ekki sé það auðmelt. Kvæðið er 52 erindi en höfundur er óþekktur. Síðasta erindið er svona – lausleg útskýring í sviga:
Mæztr, lát merki crúcis, minn lausnari, skína, örr, í atferð várri alla stund á grundu, svá at eilífrar, jöfra, óttlaust með þér, dróttinn, eigniz æztan fögnuð unaðs vistar lið kristit.
(Dýrðlegasti, örlátasti frelsari minn, lát krossins merki skína í breytni okkar hverja stund hér á jörðu, svo að kristin hersveit megi öðlast óhrædd með þér, höfðingja \[= Guði\], hina æðstu gleði hinnar eilífu sælu vistar).
Kristskvæði ná sér vel á strik á 15. og 16 öld. Allnokkuð er til af slíkum kveðskap eftir óþekkta höfunda – sumt býsna gott. En við þekkjum suma þeirra og er rétt að nefna tvo þeirra hér. Hallur Ögmundsson var prestur og skáld. Ekki er vitað nákvæmlega hvenær hann var á dögum en nokkuð víst að hann hafi verið orðinn heimilisprestur á Bæ á Rauðasandi árið 1501 og vitað er að hann var á lífi 1554 en hafði þá látið af prestskap. Hann orti Kristskvæði sem kallast „Gimsteinn“ og annað af sama toga sem heitir „Máríublóm“. Bæði þessi kvæði eru hrynhendar drápur.
Hrynhend drápa er líka „Píslargrátur“ eftir Jón Arason (1484–1550), biskup á Hólum. Hér eru tvö erindi úr þeirri drápu – lesendur sjá hversu miklu auðveldara er að skilja þessa texta en þá sem fyrr var vitnað til.
Fyrsta erindi „Píslargráts“:
Faðir vor Kristr, í friðinum hæzta, form smíðandi allra tíða, sonr í dýrð að síðan færði sanna elsku og hjálp til manna; heilagr andi á hverri stundu hér rennandi um heiminn þenna, blási hann oss í brjóstin þessi beztum ráðum guðdóms náða!
\--- og hér er svo síðasta erindi „Píslargráts“:
Jesús lífið lýða leysi, Jesús öndin eyði gröndum. Jesús pínan oss gjöri hreina. Jesús dauðinn frelsi nauðir! Magnist ást þó að málið þagni, minn drottinn, á pínu þinni! grátrinn fellr, en gef oss alla guði á vald um aldir alda.
Efnið er píslarsaga Krists og er að mestu fylgt Jóhannesarguðspjalli, en samt er líka brugðið frá því og greinilegt hér og þar að stuðst er við helgisögur og þá helst Maríusögu. Líkt og með önnur trúarljóð sem Jón Arason orti er gegnumgangandi mjög heit og djúp trúarsannfæring. Kveðskapurinn er tilgerðarlaus, það er vel og liðlega kveðið og auðskiljanlega. Það er enginn vafi á því að Jón Arason hefur mjög vel þekkt „Lilju“ Eysteins munks Ásgrímssonar og að sumu leyti haft það meistaraverk að fyrirmynd því textinn er sterkur og hreinn og ekki verið að ástæðulausu að taka óeðlilega til orða eða skreyta mál að óþörfu.
Það getur verið upplifun að leggjast yfir þessi gömlu kvæði og sjá bæði lotninguna og virðinguna fyrir yrkisefninu – en um leið að greina hve víða er leitað fanga og stundum frjálslega, eins og til dæmis með því að víkja frá guðspjöllum og vinda sér í helgisögur og líka annan kveðskap.
