Fólk undirdjúpanna

Fólk undirdjúpanna

Stundum verður jafnvel stærstu rithöfundum heimsins orða vant – og þá leita þeir kannski í Biblíuna til að lýsa því sem fyrir augu ber. Við munum öll sem komin erum til vits og ára (og jafnvel fleiri) eftir ameríska rithöfundinum Jack London en verk hans voru til á fjölda heimila hérlendis og var kjölurinn fallega rauður að sjá er þær stóðu kápulausar saman í bókahillunum.

Jack London var fæddur 1876 en andaðist 1916. Líf hans var á köflum ævintýralegt og lifnaður hans ekki alltaf til fyrirmyndar. Hann var yfirlýsingaglaður og mun eitt sinn hafa sagt eitthvað á þessa leið: „Ég trúi því að þegar ég er dauður, þá sé ég dauður. Ég trúi því að með dauða mínum sé ég afmáður til jafns við síðustu moskítófluguna sem við drápum.“

Þrátt fyrir afdráttarlausar fullyrðingar Londons um að hann væri trúlaus sósíalisti læðist að manni sá grunur – er maður leggst yfir verk hans – að þrátt fyrir allt og allt hafi nú blundað í honum trúarglóð. Hann var í það minnsta afar vel lesinn í Biblíunni og vitnaði oft í hana. Stundum finnst manni hann einmitt grípa til hennar þegar hann, textasmiðinn mikla, skortir orð.

Í bók sinni The People of the Abyss (1903), sem í íslenskri þýðingu Stefáns heitins Jónssonar námsstjóra kallast Fólk undirdjúpanna, greinir London frá veru sinni í austurhluta Lundúnaborgar (East End)  árið 1902. Þar dvaldist hann í því skyni að rannsaka lífsviðurværi þeirra sem bágust höfðu kjörin í þeirri borg; kynnast lifnaðarháttum þeirra og lífsbaráttu.

Og í þessari bók er einmitt gott dæmi um ofangreint „stílbragð“ hjá London, að leita til heilagrar ritningar þegar hann sjálfan þrýtur lýsingarorð – eða orð til þess að fanga það sem fyrir augu ber:

Það gengur enginn lengi meðfram Themsá snemma að morgni frá Parlamentinu, framhjá nál Cleopötru til Waterloo-brúarinnar, án þess að minnast þjáninganna, sem höfundur Jobsbókar nefnir fyrir tuttugu og sjö öldum:

„Menn færa landamerki úr stað, ræna hjörðum og halda þeim til beitar, asna munaðarlausra reka þeir burt og taka uxa ekkjunnar að veði, þeir hrekja fátæka af veginum og umkomulausir í landinu fara í felur. Eins og villiasnar í eyðimörk ganga þeir til starfa sinna, þeir leita fæðu á gresjunni, matar handa börnum sínum. Á sléttunni afla þeir fóðurs og tína síðustu berin í víngarði hins óguðlega. Þeir eru naktir um nætur, klæðlausir, og hafa enga ábreiðu í kuldanum, verða gegndrepa í fjallaskúrunum og híma skjóllausir utan í klettunum. Þeir slíta föðurleysingja frá brjósti móður og brjóstmylkinga umkomulausra taka þeir að veði. Þeir ganga naktir, án klæða, og hungraðir bera þeir kornknippi.“

(Job 24:2-10)