Dagar Mannsins

Dagar Mannsins

Tileinkun í bók

Í 103. Davíðssálmi stendur skrifað:

Dagar mannsins eru sem grasið, hann blómgast sem blómið á mörkinni, þegar vindur blæs á hann er hann horfinn og staður hans þekkir hann ekki framar. (Sl 103:15–16)

Þannig er lífshlaupið í hnotskurn að mati þess sem samdi þennan fallega sálm. En í raun er það nokkurt fals að birta aðeins þessar línur. Það tekur hlutina úr samhengi. Því í glæsilegri byggingu sinni þá er þessi sálmur meistaralega ortur og þessi vers hér að ofan eru í raun að „tala við“ versið á undan:

Því að hann þekkir eðli vort, minnist þess að vér erum mold. (Sl 103:14)

Þessi sálmur hefur það í „eðli“ sínu – ef svo má að orði komast um sálm – að hann boðar umfram allt gæsku Guðs og umburðarlyndi. Drottinn er staðfastur í elsku sinni til okkar og það er nákvæmlega það sem við skulum hafa hugfast. Það er leiðarstefið í þessum sálmi:

Náðugur og miskunnsamur er Drottinn, þolinmóður og mjög gæskuríkur. (Sl 103:8)

Sem kunnugt er kallast sálmversin í byrjun þessa greinarkorns á við fræg orð úr Spádómsbók Jesaja. Mögnuð orð sem margir þekkja og bókmenntafólk hefur oft gripið til og útfært með ýmsum hætti:

Allt hold er gras og allur yndisleikur þess sem blóm vallarins.

Grasið visnar, blómin fölna þegar Drottinn andar á þau. Sannlega eru mennirnir gras. Grasið visnar, blómin fölna en orð Guðs vors varir að eilífu. (Jes 40:6b–8)

En hvers vegna að rifja upp örlítið um þennan sálm? Jú, árið 1954 kom út bók með 40 stuttum sögum og sjö teikningum. Sögurnar eru ýmist smásögur eða örstuttar brotakenndar leifturmyndir. Teikningarnar magnaðar; skarpir drættir og eru prýðilegur inngangur að myndlist höfundarins sem átti eftir að láta meira að sér kveða í myndlist síðar á ævinni. Dagar mannsins heitir bókin og er hún eftir einn okkar snjallasta stílista á tuttugustu öldinni, Thor Vilhjálmsson (1925–2011).

Nú hefur einhver komið auga á það hvaðan Thor hafði titilinn á bókinni. Hann fær hann einmitt úr 103. sálmi Saltarans. Við vitum það fyrir víst því Thor vísar sérstaklega til sálmsins, birtir vers 15 og 16 og hefur sem einskonar tileinkun fremst í bókinni. Notast þar auðvitað við aðra þýðingu – hér að ofan er það 2007 þýðingin á Biblíunni sem vitnað er til.

Hvað ætli það sé sem Thor sá í þessum versum?

Jú, örugglega hefur hann lesið sálminn frá upphafi til enda og það er ljóst að hann hefur í það minnsta þekkt þessar línur úr honum – bókin hefði aldrei fengið þetta nafn öðruvísi. Hitt má telja jafnvíst að Thor dregur þessi vers út úr vegna þess að séu þau lesin ein og sér má sjá í þeim ákveðna samsvörun við þá heimspeki sem mjög var uppi í Evrópu á þessum árum. Þessi heimspekistefna var kölluð existensíalismi og fékk heitið tilvistarstefna upp á íslensku. Mörgum þótti inntak hennar heldur myrkt og var illa við boðskapinn, eða niðurstöðu þessarar heimspeki. Hún greindi í raun frá tilgangslausri veru mannsins í jarðlífinu, hér væri ekki nokkur maður til neins nema tóra þetta líf og svo deyja. \[Þetta er auðvitað gríðarleg einföldun\].

Hér er ég samt ekki að halda því fram að Thor hafi ekki séð neitt nema þessa sérstöku túlkun á orðum sálmsins – reyndar væri það fjarstæða að halda slíku fram því það kemur margoft fram í textum Thors að hann var afar vel að sér i Biblíunni og í honum sjálfum var greinilegur mystískur þráður sem ratar inn í mörg verka hans.

En það er líka önnur tilvitnun sem Thor slær fram sem einkunnarorðum og hefur undir brotinu úr sálmi 103. Þar vitnar Thor Vilhjálmsson í Goethe og hefur á frummálinu, þýsku:

„Ja, wohl bin ich nur ein Wanderer, ein Waller auf der Erde! Seid ihr denn mehr?“

Þessar línur eru úr einu af frægari verkum skáldsins, sem um leið er eitt af þeim fyrstu, \Die Leiden des jungen Werthers (\1774) en sagan er einatt talin með þeim verkum sem flokkast undir Sturm und Drang stefnuna þýsku en hún var einskonar forleikur að rómantísku stefnunni. Bók þessi var íslenskuð og heitir á okkar tungu Raunir Werthers unga (1987) og var það Gísli Ásmundsson sem þýddi.

Nú lesa ekki allir þýsku og því rétt að skoða hvernig Gísli þýðir þessi orð:

„Já, ég er víst ekki annað en flakkari, pílagrímur á þessari jörð! Eruð þið svo sem nokkuð annað?“

Hér má strax sjá að þessi orð bera í sér samskonar tilvistarlega pælingu og lesa má út úr 15. og 16. versi 103. Davíðssálms: Við erum hér bara á flækingi, lifum skamma stund, svo er það búið.

Notkun Thors Vilhjálmssonar á þessum tilvitnunum sem einkunnarorðum að bók sinni Dagar mannsins er í senn rökrétt og eðlileg. Straumar existensíalismans fara um meðal ungra menntamanna og skálda á þessum tíma en Thor er nógu víðsýnn og vel lesinn til þess að átta sig á því að ekkert er nýtt undir sólinni. Á þá staðreynd bendir hann með tilvitnuðum textum, einum eldfornum og svo öðrum liðlega 150 ára gömlum. Textadæmin tala svo inn í skáldskap hans sjálfs og tíðarandann upp úr miðri síðustu öld. Það er fagnaðarefni þegar rithöfundar leita meðvitað í eldri texta og þar með talda Biblíuna eftir efnivið til þess að skálda út af og/eða kallast á við samtíð sína.

Hinu skulum við samt ekki gleyma, þessi sálmur er um þetta:

Náðugur og miskunnsamur er Drottinn, þolinmóður og mjög gæskuríkur. (Sl 103:8)