Kirkjuhvoll

Kirkjuhvoll

Hlusta1 mín

Ljóðið Kirkjuhvoll , eftir Guðmund Guðmundsson, skólaskáld, gefur innsýn inn í það að álfar hafi verið taldir kristnir.  Í ljóðinu má því sjá hvernig kristni og álfatrú hafa mæst hjá íslenskri þjóð. Hér verða þrjú erindi ljóðsin lesin.

Hún amma mín það sagði mér: Um sólarlags bil, á sunnudögum gakk þú ei Kirkjuhvols til! Þú mátt ei trufla aftansöng álfanna þar. Þeir eiga kirkju í hvolnum, og barn er ég var, í hvolnum kvað við samhljómur klukknanna á kvöldin.

Hún trúði þessu, hún amma mín, - ég efaði ei það, að allt það væri rétt er hún sagði um þann stað. Ég leit því jafnan hvolsins með lotningu til, ég lék mér þar ei nærri um sólarlagsbil: Ég þóttist heyra samhljóminn klukknanna á kvöldin.

Ég stóð sem elding lostinn þar, ég starði hvolinn á, þar stóðu dyrnar opnar, í björgin ég sá, þar glöptu ljósin sjónir með geislanna blik,- ég guðshús sá þar opið, - það kom á mig hik: Ég þóttist heyra samhljóminn klukknanna á kvöldin.