Álfar á nýársnótt

Álfar á nýársnótt

Hlusta1 mín

Af sumum álfasögum má ráða að þeir hafi verið heiðnir en af öðrum slíkum sögum eru þeir kristnir. Í þessari sögu má heyra hvernig kristni mannfólksins og heiðni álfanna mætast.

Þessi saga segir frá tveimur systrum. Önnur  þeirra var í uppáhaldi hjá foreldrum sínum en hin var höfð útundan.

Ákveðið var að fara til messu á gamlárskvöld, eins og þá var siður, en foreldrar stúlknanna leyfðu aðeins annarri systurinni að koma með, þeirri sem þau héldu meira upp á. Hinni systurinni var sagt að þrífa allan bæinn meðan fólkið væri í burtu.

Stúlkan hlýddi því, en að því loknu bauð hún huldufólki, sem alltaf var á ferð á nýársnótt, að koma inn í bæinn.

Sjálf fór hún upp á loft og las í guðsorðabók og leit aldrei upp úr henni. Á meðan fylltist bærinn af huldufólki.

Það var í glæsilegum klæðum, skreytt gulli og skarti. Huldufólkið raðaði gulli og gersemunum á gólfið í bænum og bauð stúlkunni að taka það. Svo buðu þau henni að taka þátt í  dansi. En stúlkan lét sem hún hvorki heyrði í  þeim né sæi og hélt bara áfram að lesa.

Loks rann upp dagur og þá leit stúlkan út um gluggann og sagði: „Guði sé lof, nú er kominn dagur.“ Við þessi orð fældist huldufólkið og flýtti sér út úr bænum. Það þoldi ekki að heyra orðið „Guð“. Í flýtinum skildi það allar gersemarnar eftir.

Þegar foreldrarnir, systirin og allt heimilisfólkið kom heim frá kirkju snemma morguninn eftir sáu þau allar gersemarnar sem álfarnir höfðu skilið eftir. Systirin heimtaði þá að fá að vera ein heima næstu nýársnótt. Hún vildi líka eignast slíkan fjársjóð.

Það varð úr og allt fór fram með sama hætti. Nema þegar huldufólkið bauð henni að dansa innan um gullið og fögru munina þá þáði hún það.

Við það dundi ógæfan yfir. Hún lærbrotnaði í dansinum og missti vitið. En huldufólkið fór burt með alla dýrgripina.

Þessari sögu fylgir sá siðaboðskapur að græðgi komi fólki um koll. Betra sé að vera hógvær.