Draugasagan Djákninn á Myrká

Þjóðsaga

Hlusta1 mín
db3e78f5-a7e2-4c73-b75c-6336a9bfd726

Djákninn á Myrká

Ein frægasta draugasaga Íslendinga, Djákninn á Myrká, tengist kristnum átrúnaði. Í henni kemur fram sú trú fólks, áður fyrr, að draugur geti ekki sagt orðið Guð, ekki einu sinni þótt hann ætli bara að segja kvenmannsnafnið Guðrún! Draugurinn í sögunni, sem áður var djákni á bænum Myrká í Hörgarádal, getur alls ekki sagt nafn kærustu sinnar og segir Garún í stað þess að segja Guðrún. Djákninn á Myrká er í raun rosaleg draugasaga og í henni er slíkur hryllingur að enn rennur kalt vatn á milli skinns og hörunds þegar hún er lesin.

Sagan er á þessa leið:

Í fyrri daga var djákni einn að Myrká í Eyjafirði. Ekki er þess getið hvað hann hét.  Hann átti í ástarsambandi við konu sem Guðrún hét. Hún átti heima á Bægisá, hinum megin Hörgár, og var hún þjónustustúlka prestsins þar. Djákninn átti gráföxóttan hest sem hann kallaði Faxa.

Einhverju sinni bar svo til, stuttu fyrir jól, að djákninn fór til Bægisár, til að sækja Guðrúnu og fara með hana á jólagleðina að Myrká sem halda átti á aðfangadagskvöld. Þegar djákninn lagði af stað var veðrið orðið vont. Á leiðinni þurfti hann að fara yfir brú. En þegar hann var kominn á hana miðja, brast hún og hann féll ofan í ána.

Morguninn eftir, þegar bóndinn á Þúfnavöllum reis úr rekkju, sá hann hest með reiðtygjum fyrir neðan túnið og sá fljótt að þetta var Faxi, hestur djáknans á Myrká. Honum brá við þetta, því hann hafði séð til ferða djáknans daginn áður, en ekki orðið var við, að hann færi til baka. Hann grunaði því að eitthvað slæmt hefði komið fyrir hann. Hann gekk því ofan fyrir túnið og sá þá að hesturinn var allur votur og illa til reika. Gekk hann þá niður að ánni og fann djáknann liggjandi þar og var hann látinn.

Bóndinn fór þegar til Myrkár og sagði frá þessu.  Í ljós kom að djákninn hafði slasast á höfðinu aftanverðu þar sem hann hafði lent á ísjaka við fallið í ána. Djákninn fluttur heim til Myrkár og jarðaður.

Vegna ófærðar hafði Guðrún ekkert frétt um andlát djáknans.

Veðrið var stilltara á aðfangadag. Guðrún hlakkaði til jólagleðinnar á Myrká. Þegar leið á daginn, fór hún að búa sig, og þegar hún var vel á veg komin með það, heyrði hún, að það var barið að dyrum. Stúlka sem hjá henni var fór til dyra en sá engan úti.  Það var hvorki bjart úti né myrkt, því tungl óð í skýjum og dró ýmist frá eða fyrir. Þegar stúlka þessi kom inn aftur og kvaðst ekki hafa séð neitt, sagði Guðrún: „Til mín mun leikurinn gjörður, og skal ég að vísu út ganga." Var hún þá albúin, nema að hún átti eftir að fara í hempuna. Tók hún þá til hempunnar og fór í aðra ermina, en fleygði hinni erminni fram yfir öxlina og hélt svo í hana. Þegar hún kom út, sá hún Faxa standa fyrir dyrum og mann hjá, er hún ætlaði, að væri djákninn. Ekki er þess getið, að þau hafi átt orðræðu saman. Hann tók Guðrúnu og setti á bak og settist síðan sjálfur á bak fyrir framan hana. Riðu þau þá svo um hríð, að þau töluðust ekki við. Framundan var hár skafl, harðfenni mikið og stórt. Þegar hesturinn steyptist fram af skaflinum, lyftist upp hattur djáknans að aftanverðu, og sá Guðrún þá í höfuðkúpuna bera. Í þeirri svipan rak skýin frá tunglinu; þá mælti hann:

„Máninn líður, dauðinn ríður; sérðu ekki hvítan blett í hnakka mínum, Garún, Garún?"

En henni varð bilt við og þagði. En aðrir segja, að Guðrún hafi lyft upp hatti hans að aftan og séð í hvíta kúpuna. Hafi hún þá átt að segja: „Sé ég það, sem er." Ekki er sagt fleira af samræðum þeirra né ferðum, fyrr en þau koma heim að Myrká, og fóru þau þar af baki fyrir framan sáluhliðið; segir hann þá við Guðrúnu:

„Bíddu hérna, Garún, Garún, meðan ég flyt hann Faxa, Faxa, upp fyrir garða, garða."

Að því mæltu fór hann með hestinn. En henni varð litið inn í kirkjugarðinn. Sá hún þar opna gröf og varð mjög hrædd, en tekur þó það til bragðs, að grípa í klukkustrenginn. Í því er gripið aftan í hana, og varð henni þá það til happs, að hún hafði ekki fengið tíma til að fara nema í aðra hempuermina, því svo var sterklega til þrifið, að hempan rifnaði í sundur um axlarsauminn á þeirri erminni, er hún var komin í. En það sá hún síðast til ferða djáknans, að hann steyptist með hempuslitrið, er hann hélt á, ofan í opna gröfina og sópaðist moldin yfir hann frá báðum hliðum grafarinnar.

En það er frá Guðrúnu að segja, að hún hringdi í sífellu, allt til þess að bæjarmenn á Myrká komu út og sóttu hana. Hún var svo hrædd, að hún þorði hvorki að hreyfa sig né hætta að hringja klukkunum. Þrátt fyrir að hafa ekki fengið fréttir af dauða djáknans þá grunaði hana að þetta hafi verið afturganga hans.  Brátt sögðu Myrkármenn henni alla söguna um lát djáknans og hún sagði þeim af ferðum sínum með afturgöngunni. Þessa sömu nótt, þegar háttað var og búið að slökkva ljósið, kom djákninn og ásótti Guðrúnu. Lætin voru svo mikil að fólkið á bænum varð að fara á fætur, og varð engum svefnsamt þá nótt. Í hálfan mánuð eftir þetta mátti hún aldrei vera ein, og varð að vaka yfir henni hverja nótt. Sumir segja, að presturinn hafi orðið að sitja á rúmstokknum hjá henni og lesa í Saltaranum.

Nú var fenginn galdramaður vestur í Skagafirði. Þegar hann kom, lét hann grafa upp stein einn mikinn fyrir ofan tún og velta að gröfinni. Um kvöldið, þegar dimma tók, kom djákninn og vildi komast inn í bæinn. Þá tókst galdramanninum að lokka hann að gröfinni og setur hann þar niður með særingum mikum. Síðan velti hann steininum ofan á gröfina. Þar á djákninn að hvíla enn í dag. Eftir þetta hættu allir reimleikar á Myrká og Guðrún tók að hressast. Litlu seinna fór hún heim til sín að Bægisá, og er sögn manna, að hún hafi aldrei orðið söm og áður.

Nokkur orð um Djáknann á Myrká og kristni

Djákninn á Myrká er líklega ein frægasta draugasaga okkar Íslendinga. Hún er stutt og hnitmiðuð og ekki flókin. Að sama skapi er hún áhrifamikil og hefur orðið mörgum yrkisefni, og oft er í hana vísað. En hver eru tengsl sögunnar við kirkju og kristni?

Fyrstu tenglin blasa við í heiti sögunnar. Djákni er vígður maður og í gamla daga, eða í „fyrri daga“ svo notað sé orðalag sögunnar, voru djáknar yfirleitt einskonar aðstoðarprestar. Það að hann er djákni skiptir máli því það að vera vígður maður og breytast yfir í það að verða illvígur draugur gerir söguna dramatískari. Og þar undir liggur líka einskonar áminning til fólks: „Enginn er hólpinn“ Eðli málsins samkvæmt er heimili djáknans kirkjustaður, Myrká, og að sjálfsögðu er þar þá kirkjugarður. Bæjarheitið Myrká kallast á við ljósið sem venjulega fylgir hinum helga sið - þa er að segja, þarna takast á öfl góðs og ills.

Annað sem tengir söguna við siðinn í landinu er að það dregur að jólum. Guðrún er einmitt að bíða eftir því að djákninn sæki sig og fari með sig í jólaveislu á Myrká. Þannig eru aftur búnar til miklar andstæður sem skapa magnað andrúmsloft, annars vegar er gleði jólanna en hins vegar illviðrið og slysið í skammdegismyrkrinu. Það sem átti að verða gleði og skemmtun verður harmur og ógn.

Þá er að nefna atriði sem finnst í mörgum þjóðsögum. Draugur eða einhver yfirskilvitleg persóna (stundum álfar, tröll, huldufólk) getur ekki tekið sér í munn orðið „Guð“. Ekki heldur þótt það sé aðeins orðhluti. Þessar persónur eru með einhverjum hætti fulltrúar hins illa í heiminum og því er þeim þetta ómögulegt. Því segir djákninn, Garún. Með þessu er undirstrikaður máttur Guðs – nú eða máttleysi verri afla.

Það má ljóst vera að djákninn ætlar sér að sækja Guðrúnu en í stað þess að fara með hana til jólgleðinnar eins og upphaflega stóð til, þá ætlar hann dauður að draga hana með sér í gröfina. Þá verður það Guðrúnu til bjargar að hún nær að hringja kirkjuklukkunum. Hér aftur er áherslan á það að það sem tilheyrir Guði, kirkjunni í þessu tilfelli, er máttugra en það vonda. Kirkjuklukkur kalla til guðsþjónustu og gegna mikilvægu hlutverki í helgihaldinu – sérstaklega hér áður fyrr þegar það þótti til dæmis virðingarstaða að vera hringjari. Það fer líka svo að ómur klukknanna hrekur djáknann aftur ofan í gröf sína.

En það er greinilega ekki nóg því hann gerir aftur vart við sig og sækir að Guðrúnu og kemur þá mjög áhugaverður lokakafli sögunnar. Sóttur er galdramaður í Skagafjörð til þess að kveða djáknann endanlega niður. Galdramaðurinn nær að vinna sitt verk og miklu bjargi er komið fyrir ofan á gröf djáknans. Sú staðreynd að kallaður skuli til galdramaður frá tilteknum stað eða svæði gerir söguna enn áhrifameiri en ella – sérstaklega fyrir fólk á fyrri tímum – því hér er í raun verið að segja að til þess að koma djáknanum endanlega niður þurfi að haldast í hendur forneskja fyrri tíma og svo hinn kristni siður.

Eftir stendur þó að þrátt fyrir að leitað sé allra leiða, næst ekki að bjarga Guðrúnu, hún „verður aldrei söm“. Þannig má draga þann lærdóm að nauðsynlegt sé að vera á varðbergi, aðrir heimar eru máttugir og illir og þó að þetta hafi sloppið fyrir horn í þetta sinn – séu afleiðingarnar dapurlegar. Það er einnig rétt að veita því athygli að Guðrún er að fara að skemmta sér og djákninn líka, ef til vill eru þarna skilaboð um að best sé að láta slíkt eiga sig. Rétt er að árétta að það er frumstæð mynd af kristni og kristnum viðhorfum sem liggur í undirtexta þessarar sögu. Í það minnsta boðar Þjóðkirkjan það ekki í dag að það sé hættulegt að gera sér glaðan dag.