Hlusta·1 mín

Nokkur orð um Djáknann á Myrká
Djákninn á Myrká er líklega ein frægasta draugasaga okkar Íslendinga. Hún er stutt og hnitmiðuð og ekki flókin. Að sama skapi er hún áhrifamikil og hefur orðið mörgum yrkisefni, og oft er í hana vísað. En hver eru tengsl sögunnar við kirkju og kristni?
Sú fyrsta blasir við í heiti sögunnar. Djákni er vígður maður og í gamla daga, eða í „fyrri daga“ svo notað sé orðalag sögunnar, voru djáknar yfirleitt einskonar aðstoðarprestar. Það að hann er djákni skiptir máli því það að vera vígður maður og breytast yfir í það að verða illvígur draugur gerir söguna dramatískari. Og þar undir liggur líka einskonar áminning til fólks: „Enginn er hólpinn“ Eðli málsins samkvæmt er heimili djáknans kirkjustaður, Myrká, og að sjálfsögðu er þar þá kirkjugarður.
Annað sem tengir söguna við siðinn í landinu er að það dregur að jólum. Guðrún er einmitt að bíða eftir því að djákninn sæki sig og fari með sig í jólaveislu á Myrká. Þannig eru aftur búnar til miklar andstæður sem skapa magnað andrúmsloft, annars vegar er gleði jólanna en hins vegar illviðrið og slysið í skammdegismyrkrinu. Og það að það sem átti að verða gleði og skemmtun verður harmur og ógn.
Þá er að nefna atriði sem finnst í mörgum þjóðsögum. Draugur eða einhver yfirskilvitleg persóna (stundum álfar, tröll, huldufólk) getur ekki tekið sér í munn orðið „Guð“. Ekki heldur þótt það sé aðeins orðhluti. Þessar persónur eru með einhverjum hætti fulltrúar hins illa í heiminum og því er þeim þetta ómögulegt. Því segir djákninn, Garún. Með þessu er undirstrikaður máttur Guðs – nú eða máttleysi verri afla.
Það má ljóst vera að djákninn ætlar sér að sækja Guðrúnu en í stað þess að fara með hana til jólagleðinnar eins og upphaflega stóð til, þá ætlar hann dauður að draga hana með sér í gröfina. Þá verður það Guðrúnu til bjargar að hún nær að hringja kirkjuklukkunum. Hér aftur er áherslan á það að það sem tilheyrir Guði, kirkjunni í þessu tilfelli, er máttugra en það vonda. Kirkjuklukkur kalla til guðsþjónustu og gegna mikilvægu hlutverki í helgihaldinu – sérstaklega hér áður fyrr þegar það þótti til dæmis virðingarstaða að vera hringjari. Það fer líka svo að ómur klukknanna hrekur djáknann aftur ofan í gröf sína.
En það er greinilega ekki nóg því hann gerir aftur vart við sig og sækir að Guðrúnu og kemur þá mjög áhugaverður lokakafli sögunnar. Sóttur er galdramaður í Skagafjörð til þess að kveða djáknann endanlega niður. Galdramaðurinn nær að vinna sitt verk og miklu bjargi er komið fyrir ofan á gröf djáknans. Sú staðreynd að kallaður skuli til galdramaður gerir söguna enn áhrifameiri en ella – sérstaklega fyrir fólk á fyrri tímum – því hér er í raun verið að segja að til þess að koma djáknanum endanlega niður, fyrir fullt og fast, þurfi að haldast í hendur forneskja fyrri tíma og svo hinn kristni siður.
Eftir stendur þó að þrátt fyrir að leitað sé allra leiða, næst ekki að bjarga Guðrúnu, hún „verður aldrei söm“. Þannig má draga þann lærdóm að nauðsynlegt sé að vera á varðbergi, aðrir heimar eru máttugir og illir og þó að þetta hafi sloppið fyrir horn í þetta sinn – séu afleiðingarnar dapurlegar. Það er einnig rétt að veita því athygli að Guðrún er að fara að skemmta sér og djákninn líka, ef til vill eru þarna skilaboð um að best sé að láta slíkt eiga sig. Rétt er að árétta að það er frumstæð mynd af kristni og kristnum viðhorfum sem liggur í undirtexta þessarar sögu. Í það minnsta boðar Þjóðkirkjan það ekki í dag að það sé hættulegt að gera sér glaðan dag.